Auglýsing

Hér erum viđ :)


poh(hjá)bio.ku.dk
peturorri(hjá)gmail.com
kristin.gudjons(hjá)gmail.com

KM +45 29855994
PO +45 26502065

Ryesgade 73, st,tv
2100 Kbh

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur




Almennt tuđ

22. mars 2009 klukkan 12:09
Sorrý, er í ham...
Vildi nú samt ekki dissa alla mína ástkæru sjalla facebook félaga með því að setja þetta þar, þannig að síðan nýtist þá í almennt tuð fyrst við erum hætt að vera ógó hress og blogga.

Hér kemur kosningamyndband sus frá árinu 2003.  
Það er eiginlega ansi mikil snilld, eins og svo margt annað. Bíð spennt eftir framhaldinu fyrir næstu kosningar.  Þar sem 40% þjóðarinnar fannst öll þessi peningamanía svo æðisgengið stuð að þau vilja fara aðra umferð er svosem ekki víst að það þurfi að leggja í annað vídjó
Eina sem ég set út á þetta (haha fyndin) er hversu barnalega er talað við áhorfendur, jafnvel eins og þetta henti fyrir fólk undir kosningaaldri...hmmm

Fyrst ég er hér má tilkynna að Pétur er á Ítalíu og ég er heima að læra, ekkert nýtt og spennandi sumsé

Hafið það gott ef einhver þvælist hingað inn :) 
Kristín María
1 athugasemd

Bis bald

26. febrúar 2009 klukkan 16:58
Komið hefur í ljós að meðalaldur bloggara hér er 11 ár, þess vegna reynum við að töffast upp og hætta hér. 
Fyrst bókstaflega ALLIR eru mættir á facebook, mas. foreldrar, má finna okkur þar Laughing

P.S. nágranni okkar heitir að eftirnafni So-Young!
Gaahaha
Kristín María
6 athugasemdir

Komin heim

03. febrúar 2009 klukkan 20:57
Erum mætt heim aftur

Þetta var algjört stuð

Erum sólbrún og sælleg, betur heppnað hjá sumum en öðrum, nefnum engin nöfn 


KM sló í gegn í skíðaskóla, Caroline skíðakennarapæja kenndi mér öll trixin í bænum


PO fór í allar svartar brekkur sem fundust, skundaði svo með KM sinni í bláum síðustu dagana eftir útskrift skíðaskólans, með heitt te á brúsa og loksins fékk KM langþráða crepe með tonni af súkkulaði (hafði talað um það alla vikuna) 



Bjuggum með tveimur stelpum úr bekknum, varð einhvurs konar dönsku crash course fyrir PO. Um leið lærði hann töluvert um danska matarmenningu og nestisgerð, búningaáráttu þeirra og þemaæði.


Tókum þátt í Tour de chambre með nokkrum öðrum hótel íbúðum, vorum þar með franskt þema (frumlegt) þar sem lenti á KM af öllum að bjóða fólkið velkomið á frönsku... það endaði í oui, baguette, romantique og erotique...þessi orð endurtekin töluvert og rauðvínsflaska látin ganga milli eftir kossaleikinn, oui!
Einn gesturinn ákvað að vera memm og kynnti sig sem Jean Claude van Damme, mér fannst það óborganlega fyndið, soldið you had to be there sennilega

Það var einnig boðið upp á stelpuafmæli, sjóræningjaskip, gamlárspartý með sprengju, ræðu og kampavíni og fleira


Vorum að öðru leyti gamla parið (enda 3-5 árum eldri en allir aðrir) og nenntum ómögulega að djamma alla virka daga, tókum bara tvo daga í það og fannst nóg um. 

Fórum líka í frúkost sem haldinn var í brekkunni einn daginn, það var stuð og gaman



Því miður gleymdist að mynda samstæðu gallana (hmm) enda létum við sem minnst bera á því að við vorum í eins síðum naríum, ullarbol, skíðasokkum og utanyfirbuxum ;)

Daginn eftir heimkomu tók alvaran við, PO á fullu í vinnu og situr nú og les í NMR bók. Ég labbaði heim í dag með mörg mörg kíló af beinum í kassa. Spes. Fékk svokallaðan beinakassa leigðan í skólanum og á nú að læra allt um þau. Þá vantar mig bara hnífasettið og er þá klár í slaginn.
 
Kristín María
3 athugasemdir

Ég fer í fríiđ, lalala

22. janúar 2009 klukkan 18:34

Við erum át a hía, sjáumst eftir Frakklandsferð :)

Matarbirgðir fyrir heila viku, tjekk, drykkjarföng tjekk, spil og mjúsik einnig.
Skíðadressin glæsilegu eru einnig í hús

Hafið það yndislegt á meðan og munið að berja ekki hvert annað heldur bara auðmenn, altsvo skuldunauta vora. 

Kristín María
6 athugasemdir

13. janúar 2009 klukkan 11:57
Hér hefur ekker verið skrifað á nýju ári, bætum úr því med det samme

Við erum nú mætt aftur á Kildevældsgade og rembumst við að komast aftur inn í rútínu. Það gengur misvel. Eins og er sit ég með námsbækurnar, tebolla og kertaljós en skrifa frekar hér. Á meðan sefur Pétur vært. Þær aðstæður eru svosem príma, mér finnst svo næs að lesa í rólegheitum meðan hann sefur, ef ekki væri fyrir það að klukkan er um hádegi á þriðjudegi.

Í gær mætti stelpan sem bjó hér á undan okkur og tók smádót sem hún hafði geymt í geymslunni, á sama tíma komu tveir strákar að sækja gamla sjónvarpshlunkinn. Það fyndna við að búa í svona lítilli íbúð er að þetta munar öllu. Við vorum alsæl eftir þetta og fannst íbúðin svo voðalega fín, enda búin að losa um hálfan rúmmetra af plássi. Að auki notuðum við í fyrsta sinn þvottagrind eftir þvott og oh boy hvað það var heimilislegt að hafa þvottinn á henni frekar en um alla íbúð á öllum húsgögnum. Svona er nú lífið einfalt eftir allt saman. 

Framundan hjá mér er próf í næstu viku... og því ágætt að kynna sér hvað námskeiðið fjallar um eiginlega, hjá Pétri er doktorsverkefnið að hefjast og hann æsispenntur. Sama dag og próf klárast leggjum við af stað í vikufrí til Frakklands, þar ætlum við að standa á skíði og njóta lífsins í botn! Amk mun P gera það, ég verð sennilega innskeif í barnabrekkunni aðallega. 
Er strax farin að stressast fyrir 24 klst (!) rútuferðinni þangað niðureftir, veit ekki alveg hvernig best er að undirbúa sig bæði andlega og líkamlega fyrir svoleiðis. Búin að skrifa smá lista en hingað til eru bara komin popp, spil og sæng :)

Jólakort voru af skornum skammti í ár, jafnvel engin. Kannski týndust þau í pósti hver veit, hvernig sem er þá vonum við að jólin hafi verið yndisleg hjá öllum og áramótin gleðileg. Þökkum fyrir gamla árið og vonum að árið 2009 verði algjört dúndur.
Á nýju ári verður eins og áður opið fyrir heimsóknir. Svo má líka ganga alla leið og flytja bara hreinlega til okkar, við lofum að taka vel á móti. Hér má fá sér vinnu sem borgar í dönskum og hér fæst ódýr bjór, sumsé eintóm hamingja.
Stigagjöf fyrir heimsóknir er mjög góð en fullt hús fæst ekki nema með fastri búsetu hér ;)

Jæja, best að vekja manninn, hann þarf að baka köku fyrir vinnuna á morgun og verður að huga að því
Kristín María
9 athugasemdir

Heitt kakó

17. desember 2008 klukkan 13:12
Ja hérna, þetta blogg er alveg með hressileikann á hreinu!

Héðan er allt í fína að frétta. Ég er ein heima þessa vikuna þar sem Pétur er enn og aftur í útlöndum á ráðstefnu. Maðurinn er orðinn svo mikilvægur að ég fer að verða feimin. Hann fór til ítalíu fyrir nokkrum dögum og kemur aftur á föstudaginn. Lendir seint um kvöld og morguninn eftir förum við svo til Íslands, vei :)

Pétur er sumsé á spa hóteli í lúxus og lystisemdum að fræðast um bio-NMR (sko mig, ég mundi um hvað þetta er), hann yfirgaf mig í slæmu ástandi. Próf voru í þessari viku og ég fór ekki nógu vel útúr þeim. Var óvenju mikill stresslingur, svaf lítið, borðaði enn minna og hugsaði minnst. Þetta hófst nú samt allt saman eins og það gjarnan gerir og í dag kláraðist þetta. Eins og þið sjáið finnst mér hlutskifti okkar ekki beint sanngjörn - í þokkabót er maðurinn að plana ferð til Grikklands í vor, eins og síðasta vor, á sama tíma og ég er í vorannarprófum, æðislegt!
Ég fékk þó erfðafræðikúrs metinn og þarf því ekki að húka í prófum fram á laugardag eins og hinir, sem er mjög gott!  
Bottom line er að ég er ný manneskja frá og með deginum í dag. Býst fastlega við að það sé léttir fyrir minn sambýlismann sem hefur þurft að þola ýmislegt undanfarnar vikur.  

Nú er bara að versla allar jólagjafir og vera snögg að því. Vinna á morgun og svo klárar Salóme próf á fös og við reynum kannski að sýna lit eftir það. Jafnvel spurning um að kíkja í byen og fá sér smá jólaglögg :)

Í ljósi þess að við höfum verið yfir okkur æst yfir kreppunni og dugleysi landans verðum við eiginlega að drullast á mótmæli næsta laugardag, ef þau verða einhver. Það varð nefnilega ekkert úr mótmælum hér í köben, ég að læra og pé að mæla NMR (nörd). Best að vera ekki all talk no do. 
Þess vegna væri nú æðisgengin hugmynd fyrir alla að trítla þangað, fá sér heitt kakó og hittast, blikk blikk ;) 

Talandi um heitt kakó. Ég umgengst hættulega mikið krúttfólk hér í dk. Krúttkynslóð íslendinga var bara grín, þau voru húfur og treflar miðað við þessi prófessionals.
Í dag var ég í verklegu vefjafræðiprófi sem fer þannig fram að maður skoðar vefjasýni, í 2 mín hvert og þarf að greina. Það gekk ömurlega. Ég var í fyrsta hópnum sem mætti klukkan korter í 8. Svo voru hópar á 30 mín fresti til kl 1 í dag. Til þess að tryggja að ekkert yrði kjaftað frá vorum við geymd í herbergi, öll 270 þar til síðasti hópurinn fór inn!!
Hvað gerir krúttfólk í þeirri stöðu? Jú, þau plana að allir komi með eitthvað krúttsubstans með sér til að stytta stundir, ég kom með mandarínur, ein kom með jólakökur, og aðal krúttkarlinn kom með 3 litra af heitu kakói!
Sæll, hef ekki áður kynnst neinum sem hefur orku í að hita 3 litra af kakó svona morguninn fyrir próf :) Svo sátum við og spiluðum og "hugguðum" okkur í nokkra tíma. 

Nú langar mig svolítið að segja brandara til þess að létta aðeins stemninguna í þessu bloggi...en kann engan. Þess vegna er nú opið fyrir brandara í kommentakerfið, vesgú  
Kristín María
5 athugasemdir

Einmana auđmađur

28. nóvember 2008 klukkan 22:47
Ohh er ekki gott að heyra í mér? Ha...

Lífið gengur sinn vanagang hérna í Danmörku og þá er best að ég tali aðeins um sjálfan mig. Nú er ég kominn með lítinn battsjelor-nema til þess að sjá um, hef reyndar verið að sjá um hann í sirka þrjár vikur. Hann er reyndar ekkert lítill, líklega svona 1.90 á hæðina. Hann er frá Litháen og talar ensku rétt eins og maður myndi ímynda sér með ákaflega miklum austur-evrópu hreim "so yes...æ hjev vonj kwestjún...why you use linux not windows?" svo horfir hann á mann eins og eitt stórt spurningarmerki, ég gef útskýringu og hann horfir áfram eins og eitt stórt spurningarmerki í svona 20 sekúndur áður en ég labba í burtu. Hann er samt voða fínn. Hann hleypur stundum...svona inni þið vitið...svona stressaða týpan. Áðan þá vorum við inni á labbi, ég að útskýra eitthvað svakalegt eins og vanalega, og þá kemur einn annar gaur inn og segir "Har I lyst til en öl?". Litháinn verður náttúrulega eins og eitt stórt spurningarmerki. Hann ætlaði svo aldrei að trúa því að það væri verið að bjóða okkur bjór, hann bara náði ekki upp í hugtakið bjór....í vinnunni/skólanum. Nóg um það, ágætur strákur.

Nú er kominn tími á smá tæknital. Þá er doktorsverkefnið loks alveg komið á hreint. Strax eftir áramót mun ég byrja. Ég ætla að tækla eina af stærstu ráðgátum sameindalíffræðinnar með því að nota sameindalíffræðilegar og efna- og eðlisfræðilegar aðferðir. Þetta verður samvinnuverkefni við rannsóknarhóp eðlisfræðinga í Mílanó og Modena á Ítalíu ásamt tengingu við hóp í Bandaríkjunum. Þetta þýðir að ég mun verja miklum tíma á Ítalíu við ýmsar rannsóknir. Þetta verður rannsókn á folding-mekanisma próteina með því að nota smátt 4-helixa prótein sem módel-kerfi. Fyrir utan hefðbundið prótein NMR munum við nota aðferð sem er afar "heit" núna og er svokölluð single-molecule aðferð en það er, eins og nafnið gefur til kynna, mæliaðferð þar sem maður fylgist með einni sameind, í stað þess að horfa á meðaltal stórs safns sameinda. Aðferðin felur meðal annars í sér að tengja langar DNA sameindir við próteinið og festa það svo endana með því að nota það sem er kallað "optical trap". Með þessum vonumst við til þess að skilja betur hvernig sameindirnar taka á sig þrívíða mynd. Nóg um það, ágætis strákur.

Litlar fréttir er að segja af Kristínu Maríu vegna þess að hún gerir ekkert nema að læra í þessari blessuðu læknisfræði sinni. Hún er nokkuð góð með sig. Hún vill alltaf vera að rassamæla mig. Segir að hún þurfi að æfa sig fyrir verklegt. Ég trúi því nú reyndar ekki. Einu sinni vaknaði ég í snarhasti um miðja nótt. Þá var hún búin að setja mæli í rassinn á mér og var við það að barkaþræða mig. Einu sinni vaknaði ég með svakalegan verk í síðunni, kom fram og sá þá KM hlæjandi í eldhúsinu....."Hverju ertu að hlæja að?" spurði ég. Þá segir hún "Ég tók úr þér nýrað!!! HAHAHAHA" Við það sagði ég stopp. Nóg um það, ágætis strákur.

Við komum bráðum heim, ég (eða mér eins sjálfstæðismenn segja) hlakka hrikalega til að hitta alla, get ekki beðið. Nóg um það, ágætis strákur.


Sjáumst 20 des!! 


Ps. Hafiði séð snilldarmyndbandið með Þorsteini Guðmunds og félögum? Svo bendi ég á vídjóbloggið hans, sem að er ógeðslega fyndið.

 

Pétur Orri
7 athugasemdir

Auglýsing

22. nóvember 2008 klukkan 16:56
Heil og sæl

Pétur Orrmundur hefur ekki sést heima í þónokkurn tíma, ég vldi nota tækifærið og auglýsa eftir honum hér, hefur einhver rekist á manninn?

Fréttist síðast af honum á leið á sveittarassatónleika með Reynhard sínum. Hugsanlegt er að þeir félagar hafi átt viðkomu á McDonalds, jafnvel tvisvar sama daginn.  Tónleikum er víst lokið en skilst að það sé fótboltaleikur sem á sér stað einhvers staðar í heiminum og er sjónvarpað. Athuga má alla barbúllur sem sýna enskan, danskan, íslenskan younameitlenskan fótbolta, sérstaklega ef þar er seldur bjór. 
Ef hann finnst ekki neins staðar í grennd við svoleiðis staði er ráð að leita í listasöfnum hér á österbro, já ég sagði listasöfnum. Eftir persónunjósnir á netinu sé ég að hann gæti verið þar að finna. 

Ef allt þrýtur verður að fara beint niður á Biocenter og hengja þar upp miða með símanúmeri sínu og biðja fólk að hringja ef hann sést þar, það er alls ekki ólíklegt. Jafnvel að hann sé upptekinn við pizzuát með einmana vinnufélögum. Það er ekki hægt að starfsfélagar séu einmana þannig að Pétur hefur átt það til að hanga með þeim framundir háttatíma í vinnunni og á pizzustöðum.
Hvernig sem leit er háttað, ekki hringja, maðurinn er með símann á silent...enda mjög upptekinn maður hér á ferð :)


Jæja, eins og sést hér að ofan hefur lífsinnihald mitt ekkert breyst frá síðustu færslu. Það er enn jafn spennandi.
Var að koma af bókasafninu og ætla að halda áfram að læra...aaalveg rétt bráðum. Líf mitt er meira að segja svo spennó að ég blogga um Pétur, gaah. 
Reyndar fór ég að sækja dótið mitt í skáp á bókasafninu í dag, en gat ekki opnað skápinn með lyklinum. Juuu mín var bara að reyna að opna vitlausan skáp. Þetta var mjög spennuþrungin stund!

Ég setti inn myndir á flickr frá íslandsferðinni í haust, loksins. Vona að þær séu í lagi allra vegna. Mér finnst allir einstaklega myndó á þeim :)


Annars vona ég bara að allir hafi skemmt sér vel í mótmælum í dag, mogginn segir mér að það viðri vel til mótmæla í dag og hver trúir ekki mogganum. Ja hérna hér.
Við ætlum sjálf að skella okkur á mótmæli hér í Köben 1.des, ég læt týnda manninn í skiltagerð og læti. Ég ætla að heimta niðurfellingu námslána og einkaþotu, minna má það ekki vera fyrir svona fínt fólk.

Dúddamía, týndi týndason var að hringja...í mig!
Þetta slær alveg ævintýrinu með skápinn við, við ætlum að hittast í listasafninu í kvöld, æði ;)  

Vona að enginn hafi látist af leiðindum við lesturinn, ég tek enga ábyrgð á því 
Kristín María
4 athugasemdir

Fréttir

16. nóvember 2008 klukkan 21:42
Pétur Orri:

Í ljósi þeirrar viðbjóðslegu spillingar og siðblindu sem á sér stað á Íslandi núna, þá er ekki úr vegi að hvetja alla aftur til þess að horfa á þessa mynd...

Zeitgeist addendum .....byltingin er núna. 

Kristín María:

Af mér er þetta að frétta

 

 Nóvemberkveðjur
Kristín María
10 athugasemdir

Hvađ er ađ!

03. nóvember 2008 klukkan 22:18

Stjórn Kaupþings lét afskrifa skuldir fjölda starfsmanna bankans áður en hann var þjóðnýttur. Fjármálaeftirlitið segist ekki hafa samþykkt niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankans.

Kaupþing afskrifaði skuldir fjölda starfsmanna bankans í lok september, örfáum vikum áður en bankinn var þjóðnýttur. Heimildarmaður fréttastofu, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að stjórn bankans hafi tekið þessa ákvörðun. Fjárhæðirnar munu vera háar og skuldir fjölda starfsmanna munu hafa verið afskrifaðar.

 

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru skuldir margra stjórnenda Nýja Kaupþings afskrifaðar. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings vildi ekki svara spurningum fréttamanns þegar náðist í hann í dag. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, né Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Nýja Kaupþings.

Starfsmaður skilanefndar Kaupþings sem fréttastofa náði tali af vildi heldur ekki tjá sig um málið. Gunnar Páll Pálsson, sem sat í stjórn gamla Kaupþings segist ekki vita til þess að skuldir starfsmanna bankans hafi verið afskrifaðar.

Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu vegna málsins kemur fram að í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda nýju bankanna segi að skuldbindingar starfsmanna lúti sömu lögmálum og önnur lán sem fluttust yfir til nýju bankanna. Fjármálaeftirlitið hafi ekki samþykkt sérstaklega niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankanna.

 

...af ruv.is

Spurning um að láta afskrifa námslánin og fleira 

Pétur Orri
13 athugasemdir