Auglýsing

Hér erum viđ :)


poh(hjá)bio.ku.dk
peturorri(hjá)gmail.com
kristin.gudjons(hjá)gmail.com

KM +45 29855994
PO +45 26502065

Ryesgade 73, st,tv
2100 Kbh

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur




Auglýsing

22. nóvember 2008 klukkan 16:56
Heil og sæl

Pétur Orrmundur hefur ekki sést heima í þónokkurn tíma, ég vldi nota tækifærið og auglýsa eftir honum hér, hefur einhver rekist á manninn?

Fréttist síðast af honum á leið á sveittarassatónleika með Reynhard sínum. Hugsanlegt er að þeir félagar hafi átt viðkomu á McDonalds, jafnvel tvisvar sama daginn.  Tónleikum er víst lokið en skilst að það sé fótboltaleikur sem á sér stað einhvers staðar í heiminum og er sjónvarpað. Athuga má alla barbúllur sem sýna enskan, danskan, íslenskan younameitlenskan fótbolta, sérstaklega ef þar er seldur bjór. 
Ef hann finnst ekki neins staðar í grennd við svoleiðis staði er ráð að leita í listasöfnum hér á österbro, já ég sagði listasöfnum. Eftir persónunjósnir á netinu sé ég að hann gæti verið þar að finna. 

Ef allt þrýtur verður að fara beint niður á Biocenter og hengja þar upp miða með símanúmeri sínu og biðja fólk að hringja ef hann sést þar, það er alls ekki ólíklegt. Jafnvel að hann sé upptekinn við pizzuát með einmana vinnufélögum. Það er ekki hægt að starfsfélagar séu einmana þannig að Pétur hefur átt það til að hanga með þeim framundir háttatíma í vinnunni og á pizzustöðum.
Hvernig sem leit er háttað, ekki hringja, maðurinn er með símann á silent...enda mjög upptekinn maður hér á ferð :)


Jæja, eins og sést hér að ofan hefur lífsinnihald mitt ekkert breyst frá síðustu færslu. Það er enn jafn spennandi.
Var að koma af bókasafninu og ætla að halda áfram að læra...aaalveg rétt bráðum. Líf mitt er meira að segja svo spennó að ég blogga um Pétur, gaah. 
Reyndar fór ég að sækja dótið mitt í skáp á bókasafninu í dag, en gat ekki opnað skápinn með lyklinum. Juuu mín var bara að reyna að opna vitlausan skáp. Þetta var mjög spennuþrungin stund!

Ég setti inn myndir á flickr frá íslandsferðinni í haust, loksins. Vona að þær séu í lagi allra vegna. Mér finnst allir einstaklega myndó á þeim :)


Annars vona ég bara að allir hafi skemmt sér vel í mótmælum í dag, mogginn segir mér að það viðri vel til mótmæla í dag og hver trúir ekki mogganum. Ja hérna hér.
Við ætlum sjálf að skella okkur á mótmæli hér í Köben 1.des, ég læt týnda manninn í skiltagerð og læti. Ég ætla að heimta niðurfellingu námslána og einkaþotu, minna má það ekki vera fyrir svona fínt fólk.

Dúddamía, týndi týndason var að hringja...í mig!
Þetta slær alveg ævintýrinu með skápinn við, við ætlum að hittast í listasafninu í kvöld, æði ;)  

Vona að enginn hafi látist af leiðindum við lesturinn, ég tek enga ábyrgð á því 
Kristín María
Davíđ Ingi
 
Hlakkarðu ekkert til jólanna Kristín María?
23. nóvember 2008 klukkan 00:01
Katrín Kolka
 
týndi maðurinn hefur sem sagt komið í leitirnar?
En mikið eruð þið systur og mægður myndarlegar!
23. nóvember 2008 klukkan 09:32
Rósa
 
Skemmtilegar myndir! Bestar þar sem þú ert í peysunni hennar mömmu :)
Hvenær eru annars prófin þín KM? Eru þau ekki örugglega fyrir jól?
23. nóvember 2008 klukkan 20:22
Salóme María Ólafsdóttir
 
Vá shit...ég lif meira segja skemmtilegara lífi hehehe djók...er í miðri sjálfvorkun og sé ekki fram á að lifa þennan mánuð af! Segi bara....guð blessi 19. desember! þá verðru nú fjör :)
24. nóvember 2008 klukkan 20:56

Skrifa athugasemd