Auglýsing

Hér erum viđ :)


poh(hjá)bio.ku.dk
peturorri(hjá)gmail.com
kristin.gudjons(hjá)gmail.com

KM +45 29855994
PO +45 26502065

Ryesgade 73, st,tv
2100 Kbh

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur




Einmana auđmađur

28. nóvember 2008 klukkan 22:47
Ohh er ekki gott að heyra í mér? Ha...

Lífið gengur sinn vanagang hérna í Danmörku og þá er best að ég tali aðeins um sjálfan mig. Nú er ég kominn með lítinn battsjelor-nema til þess að sjá um, hef reyndar verið að sjá um hann í sirka þrjár vikur. Hann er reyndar ekkert lítill, líklega svona 1.90 á hæðina. Hann er frá Litháen og talar ensku rétt eins og maður myndi ímynda sér með ákaflega miklum austur-evrópu hreim "so yes...æ hjev vonj kwestjún...why you use linux not windows?" svo horfir hann á mann eins og eitt stórt spurningarmerki, ég gef útskýringu og hann horfir áfram eins og eitt stórt spurningarmerki í svona 20 sekúndur áður en ég labba í burtu. Hann er samt voða fínn. Hann hleypur stundum...svona inni þið vitið...svona stressaða týpan. Áðan þá vorum við inni á labbi, ég að útskýra eitthvað svakalegt eins og vanalega, og þá kemur einn annar gaur inn og segir "Har I lyst til en öl?". Litháinn verður náttúrulega eins og eitt stórt spurningarmerki. Hann ætlaði svo aldrei að trúa því að það væri verið að bjóða okkur bjór, hann bara náði ekki upp í hugtakið bjór....í vinnunni/skólanum. Nóg um það, ágætur strákur.

Nú er kominn tími á smá tæknital. Þá er doktorsverkefnið loks alveg komið á hreint. Strax eftir áramót mun ég byrja. Ég ætla að tækla eina af stærstu ráðgátum sameindalíffræðinnar með því að nota sameindalíffræðilegar og efna- og eðlisfræðilegar aðferðir. Þetta verður samvinnuverkefni við rannsóknarhóp eðlisfræðinga í Mílanó og Modena á Ítalíu ásamt tengingu við hóp í Bandaríkjunum. Þetta þýðir að ég mun verja miklum tíma á Ítalíu við ýmsar rannsóknir. Þetta verður rannsókn á folding-mekanisma próteina með því að nota smátt 4-helixa prótein sem módel-kerfi. Fyrir utan hefðbundið prótein NMR munum við nota aðferð sem er afar "heit" núna og er svokölluð single-molecule aðferð en það er, eins og nafnið gefur til kynna, mæliaðferð þar sem maður fylgist með einni sameind, í stað þess að horfa á meðaltal stórs safns sameinda. Aðferðin felur meðal annars í sér að tengja langar DNA sameindir við próteinið og festa það svo endana með því að nota það sem er kallað "optical trap". Með þessum vonumst við til þess að skilja betur hvernig sameindirnar taka á sig þrívíða mynd. Nóg um það, ágætis strákur.

Litlar fréttir er að segja af Kristínu Maríu vegna þess að hún gerir ekkert nema að læra í þessari blessuðu læknisfræði sinni. Hún er nokkuð góð með sig. Hún vill alltaf vera að rassamæla mig. Segir að hún þurfi að æfa sig fyrir verklegt. Ég trúi því nú reyndar ekki. Einu sinni vaknaði ég í snarhasti um miðja nótt. Þá var hún búin að setja mæli í rassinn á mér og var við það að barkaþræða mig. Einu sinni vaknaði ég með svakalegan verk í síðunni, kom fram og sá þá KM hlæjandi í eldhúsinu....."Hverju ertu að hlæja að?" spurði ég. Þá segir hún "Ég tók úr þér nýrað!!! HAHAHAHA" Við það sagði ég stopp. Nóg um það, ágætis strákur.

Við komum bráðum heim, ég (eða mér eins sjálfstæðismenn segja) hlakka hrikalega til að hitta alla, get ekki beðið. Nóg um það, ágætis strákur.


Sjáumst 20 des!! 


Ps. Hafiði séð snilldarmyndbandið með Þorsteini Guðmunds og félögum? Svo bendi ég á vídjóbloggið hans, sem að er ógeðslega fyndið.

 

Pétur Orri
gunnur
 
Pétur ég vissi alltaf að þú værir snillingur.. ! vonandi verður þú með nóg af líffærum til þess að komast heim um jólin :) hlakka til að sjá ykkur.
30. nóvember 2008 klukkan 17:35
Pétur
 
Hlökkum til að sjá ykkur líka, ég er að skrifa þetta með tánum því KM tók þrjá putta af mér......nei djók.
30. nóvember 2008 klukkan 18:19
Agnar Eitthundrađ
 
lalli !
01. desember 2008 klukkan 14:19
Guđrún Fönn
 
Ég sé að þú hefur hefnt þín á konunni þinni, sá að hún var að auglýsa eftir nýjum heila. Svona vill þetta fara, been there..
01. desember 2008 klukkan 20:04
Ţórunn Ţ
 
Ha ha. Ímynda mér Litháann taka skyndihlaup eins og Napoleon Dynamite og þú bara alveg púslaður... Bið að heilsa í kotið og hlakka til að sjá framan í ykkur!
02. desember 2008 klukkan 22:07
Katrín Kolka
 
Til hamingju með doktorsverkefnið Pétur, það er örugglega mjög áhugavert þótt ég hafi nú ekki skilið mikið... en bíð bara eftir því að geta kallað þig Dr. Pétur og vitnað í þig í virðulegum samræðum.
En ertu ekki enn búin að kenna bachelornum þínum að hella upp á kaffi? Og bíddu bara þar til KM fer að setja upp þvaglegg hjá þér eða gera prostata-skoðun, þú munt grátbiðja um rectal mælana...
04. desember 2008 klukkan 20:32
Iđunn Elfa
 
Til að koma í veg fyrir frekari útlimamissi og svefnleysi hjá Pétri (ekki auðvelt að sofna þegar KM og hnífar eru í húsinu) myndi ég mæla með ódýrri laus, "Acland´s Video Atlas of Human Anatomy" þar er hann búinn að skera allt sem hægt er að skera, hann segir frá og nöfnin poppa upp á skjáinn.. Jólamyndin í ár.. í nokkrum bindum :)
Vonast til að sjá ykkur þann 20. því ég fer norður þann 21. snemma...
16. desember 2008 klukkan 10:22

Skrifa athugasemd