Auglýsing

Hér erum viđ :)


poh(hjá)bio.ku.dk
peturorri(hjá)gmail.com
kristin.gudjons(hjá)gmail.com

KM +45 29855994
PO +45 26502065

Ryesgade 73, st,tv
2100 Kbh

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur




Heitt kakó

17. desember 2008 klukkan 13:12
Ja hérna, þetta blogg er alveg með hressileikann á hreinu!

Héðan er allt í fína að frétta. Ég er ein heima þessa vikuna þar sem Pétur er enn og aftur í útlöndum á ráðstefnu. Maðurinn er orðinn svo mikilvægur að ég fer að verða feimin. Hann fór til ítalíu fyrir nokkrum dögum og kemur aftur á föstudaginn. Lendir seint um kvöld og morguninn eftir förum við svo til Íslands, vei :)

Pétur er sumsé á spa hóteli í lúxus og lystisemdum að fræðast um bio-NMR (sko mig, ég mundi um hvað þetta er), hann yfirgaf mig í slæmu ástandi. Próf voru í þessari viku og ég fór ekki nógu vel útúr þeim. Var óvenju mikill stresslingur, svaf lítið, borðaði enn minna og hugsaði minnst. Þetta hófst nú samt allt saman eins og það gjarnan gerir og í dag kláraðist þetta. Eins og þið sjáið finnst mér hlutskifti okkar ekki beint sanngjörn - í þokkabót er maðurinn að plana ferð til Grikklands í vor, eins og síðasta vor, á sama tíma og ég er í vorannarprófum, æðislegt!
Ég fékk þó erfðafræðikúrs metinn og þarf því ekki að húka í prófum fram á laugardag eins og hinir, sem er mjög gott!  
Bottom line er að ég er ný manneskja frá og með deginum í dag. Býst fastlega við að það sé léttir fyrir minn sambýlismann sem hefur þurft að þola ýmislegt undanfarnar vikur.  

Nú er bara að versla allar jólagjafir og vera snögg að því. Vinna á morgun og svo klárar Salóme próf á fös og við reynum kannski að sýna lit eftir það. Jafnvel spurning um að kíkja í byen og fá sér smá jólaglögg :)

Í ljósi þess að við höfum verið yfir okkur æst yfir kreppunni og dugleysi landans verðum við eiginlega að drullast á mótmæli næsta laugardag, ef þau verða einhver. Það varð nefnilega ekkert úr mótmælum hér í köben, ég að læra og pé að mæla NMR (nörd). Best að vera ekki all talk no do. 
Þess vegna væri nú æðisgengin hugmynd fyrir alla að trítla þangað, fá sér heitt kakó og hittast, blikk blikk ;) 

Talandi um heitt kakó. Ég umgengst hættulega mikið krúttfólk hér í dk. Krúttkynslóð íslendinga var bara grín, þau voru húfur og treflar miðað við þessi prófessionals.
Í dag var ég í verklegu vefjafræðiprófi sem fer þannig fram að maður skoðar vefjasýni, í 2 mín hvert og þarf að greina. Það gekk ömurlega. Ég var í fyrsta hópnum sem mætti klukkan korter í 8. Svo voru hópar á 30 mín fresti til kl 1 í dag. Til þess að tryggja að ekkert yrði kjaftað frá vorum við geymd í herbergi, öll 270 þar til síðasti hópurinn fór inn!!
Hvað gerir krúttfólk í þeirri stöðu? Jú, þau plana að allir komi með eitthvað krúttsubstans með sér til að stytta stundir, ég kom með mandarínur, ein kom með jólakökur, og aðal krúttkarlinn kom með 3 litra af heitu kakói!
Sæll, hef ekki áður kynnst neinum sem hefur orku í að hita 3 litra af kakó svona morguninn fyrir próf :) Svo sátum við og spiluðum og "hugguðum" okkur í nokkra tíma. 

Nú langar mig svolítið að segja brandara til þess að létta aðeins stemninguna í þessu bloggi...en kann engan. Þess vegna er nú opið fyrir brandara í kommentakerfið, vesgú  
Kristín María
ester
 
Ætli Pétur greyið sé ekki bara að tryggja að hann þurfi ekki að vera í sama póstnúmeri og þú næst þegar ósköpin ganga yfir...
Annars skil ég ekki hvernig þú getur ekki borðað þegar þú ert í prófum. Ég er sísvöng og eyði örugglega meiri tíma í að næra mig en að læra :s

Hlakka til að sjá ykkur!
17. desember 2008 klukkan 19:46
Já, ég belgist nú bara út í prófum, er nartsjúk þegar ég læri, alltaf með nammi og eitthvað...en bíddu bíddu, ertu að koma á laugardaginn?? ég hélt þú kæmir ekki fyrr en 22. desember!! Ég gleðst mikið yfir þessum fréttum :o)
17. desember 2008 klukkan 22:04
Rósa
 
Til hamingju með að vera búin í prófum þyðtir!! En ég er sammála Ester og Höllu, ég er algjörlega óþekkjanleg eftir þessi próf... Gerði ekki annað en að borða :)

En já, við Ásdís vorum sko búnar að ræða það að þið vilduð eflaust fara beint á einhver mótmæli þegar þið kæmuð. Kannski að við setjum bara krúttlegt kakó á brúsa og förum beinustu leið á Austurvöll ;)
18. desember 2008 klukkan 18:49
Katrín Kolka
 
Þú ert nú svo mikið krútt KM. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef stundum farið með kaffi á hitabrúsann í skólann, en það er líka mjög flottur bleikur og skræpóttur brúsi get ég sagt þér svo það getur enginn sagt að ég sé lummó (frekar bara krútt).
En við þurfum að skoða betur það sem Pétur er að fara gera í Grikklandi vegna þess að það er víst líka á planinu hjá Eiríki Mr. Very Important folklorist (eða hvað sem maður segir) að fara til Grikklands í vor og halda tímamótafyrirlestur á ráðstefnunni, ég er samt hræddust um að hann fari þegar útskriftin mín verður úr HÍ (ef það verður loksins eitthvað úr henni...) því ég ætlaði að láta hann kveljast á stólunum í marga klst og hefna mín - svo er hjúkrunarfræðideildin líka síðust, húrra húrra.
En þetta er nú orðið ansi langt hjá mér, hlakka til að sjá ykkur - þarf maður að panta tíma fyrirfram eða bara mæta og vona að maður komist að?
18. desember 2008 klukkan 20:46
Kristín María
 
Ja hérna, það má nú ekki lesa of mikið í að ég hafi ekkert borðað. Það var aðeins síðasta daginn fyriri próf af fleiri vikna rugli. Auk þess fannst mér um að gera að dramatísera hin hræðilegu örlög mín miðað við P. Hvað meiniði annars að þið séuð óþekkjanlegar? Ég er algjör bjútibomba og rosa frískleg eftir svona próftíð eins og fólk almennt er...

Guð Katrín, er þetta ekki alveg týpiskt, þeir eiga eftir að enda á sama stað í sólarlöndum rallhálfir og þykjast vera important. Meðan við svitnum yfir alvöru lífsins. Óréttlæti punktur is.
Kaffibrúsi er borderline krúttlegt, það er eiginlega bara töff :) En fyrst þetta er bleikur brúsi (vá hvað fékkstu þannig?) fellur þetta í krútttöff flokkinn. Já það er bara um að gera að panta tíma, jafnvel taka bara númer, neinei. Ég er einmitt hérna klukkan hálftvö að nóttu að hefja jólakortaskrif. Skrifaði 3 og var að fara að byrja á til ykkar, þegar ég sá hversu hörmulega ég hafði skrifað hin. Þitt verður skrifað að degi til í von um að eitthvað skiljist á því :)
19. desember 2008 klukkan 00:56

Skrifa athugasemd